Um þessar mundir er hálf öld liðin síðan Kókómjólk kom fram á sjónarsviðið. Í tilefni þess rifjum við upp sögu þessa vinsæla drykkjar í formi hátíðarræðu í stórafmæli þar sem Klóa er þakkað fyrir allar góðu minningarnar sem Kókómjólk hefur skapað síðustu 50 árin – og heldur áfram að skapa inn í framtíðina. Hannes Þór Halldórsson leikstýrði en Hilmar Guðjónsson leikur ræðumanninn og vin Klóa.